Can't Stop Singing - Uriah Heep

Sumir dagar eru þannig að allt virðist ætla að fara downhill.
Dagurinn í dag var þannig hjá mér...

Þegar við Birgir vorum að gera okkur til fyrir vinnuna í morgun þá virtist ekkert ætla að ganga upp hjá honum. Ég var næstum búin að fá hann til að vera heima því ég fann á mér að þetta myndi halda svona áfram hjá honum.

Nema hvað, þegar við mætum í vinnuna þá snérist ógæfan yfir á mig.
Allt sem gat farið úrskeiðis fór úrskeiðis.
Samt fékk ég engin blóm...

En ég kýs að líta á þetta svona:
Dagurinn var það ömurlegur að hvað sem gerist í kvöld getur ekki verið verra en það sem gerðist í dag. Það er föstudagur og ég fæ bjór í kvöld.

Kv. bjartsýna gellan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

thihihiihihi!! skooooo, ef þetta gerist aftur með þessa ógæfu þá skal ég senda þer blóm! :D

ragga blómastelpa (IP-tala skráð) 23.7.2010 kl. 21:01

2 Smámynd: Bergþóra

Haha, takk Ragga. Háa fimman frá þér í gær jafnaðist samt nánast á við blómvönd :)

Bergþóra, 24.7.2010 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband