Þetta er alls engin ást - Herkúles

Þetta tókst betur en ég hafði þorað að vona.
Í gær hélt ég sem sagt surprise afmæli fyrir Birgi, en hann átti afmæli á miðvikudaginn.

Ég er með lélegasta poker-face í heimi, en ég hafði samt ekki neinar áhyggjur af því að hann myndi fatta eitthvað því bróðir minn er jafn clueless og lítið barn sem fer upp í sendiferðabíll sem á stendur "frítt nammi".

afmaeli_birgis_005.jpg
Girnilegustu, og bestu, möffins sem ég hef bakað!

Ég ætla btw, alltaf að eiga svona krem inni í ískáp þegar ég kem heim úr bænum eftir djamm.
Þynnkubaninn 2010.

afmaeli_birgis_007.jpg

Ef einhver kemur með komment um að kremið líti út eins og hundaskítur þá er það nákvæmlega það sem viðkomandi fær á sína möffins í næsta afmæli!

Allavega.
Gunnar og Birgir fóru í pool um 19:30 og ætluðu að koma aftur kl. 21:00.

Kl. 21:07 fékk ég sms frá Gunnari um að þeir væru að keyra niður Eyralandið en þá vorum við öll komin á okkar staði með blöðru í hönd.

afmaeli_birgis_014.jpg
"Sörpræs".

Svo byrjaði bara partýið.
Bjórinn flæddi og fólk minglaði.

afmaeli_birgis_064.jpg

afmaeli_birgis_061.jpg

afmaeli_birgis_081.jpg

Ég ætla að finna restina af kreminu.
Heyrumst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æ hvað þú ert eitthvað æðisleg! Einhver séns að fá svona muffins þegar ég kem? Cup cakes hérna eru með allt of miklu kremi og ég er bara ekki svona mikil myndar-manneskja eins og þú að fara að baka.

ps. heimta að fá að hitta þig á miðvikudeginum líka! svona til að segja bæ og svoleiðis.

Xx*

* er farin að setja svona x fyrir aftan allt sem ég skrifa því annars er maður talinn dónalegur hérna í bretlandi og þetta er bara pikk fast í mér (ekki lesa þetta með gossip girl tón)

ps. II Haha reiknaði ruslpóstarvörnina rangt! eins gott að ég er að fara aftur í skóla í haust.

Fríða (IP-tala skráð) 21.3.2010 kl. 18:38

2 Smámynd: Fjóla =)

Góð systir..

hvernig krem er þetta... ég fór ekki að hugsa um hundakúk fyrr en þú sagðir það.. haha.. en flott mynd af kökunum..:P

Gott að þetta heppnaðist vel..:)

Fjóla =), 21.3.2010 kl. 21:37

3 identicon

Þetta var gott kvöld :D

Helga (IP-tala skráð) 22.3.2010 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband