Hello Sunshine - Syd Matters
27.9.2010 | 17:34
Við frændsystkinin af BORG erum í þessu að plana að fara aftur í sumarbústaðarferð um jólin, eins og í fyrra.
Ég er upp á hlöðu að læra, og það er einum of erfitt að hlægja ekki bæði yfir því sem fer okkar á milli í skilaboðunum á facebook og myndunum sem ég er að skoða frá seinustu ferð.
Nokkrar klassa myndir:
Föstudagskvöld:
Kvöldið byrjaði náttúrulega á pizzakexinu...
Klassi.
Svo var farið í Trivial Persuit, þar sem Þórunn og María unnu með yfirburðum.
Þegar Þórunn fór að undirbúa sig fyrir svefninn þá komst hún að því að sýrópsflaskan hennar (sem tekin var með til að hafa með skonsunum á sunnudeginum) hafði lekið.
Hún var mjög þakklát fyrir ráð móður sinnar að vefja flöskunni inn í eitthvað mjúkt svo hún myndi ekki brotna....
Laugardagurinn:
Morgunverður (ekkert fyndið við hann samt...)
Jólajólajólabjór.
Næst var lagst í piparkökuskreytingar...
Hitler... og gyðingar auðvitað.
Dónafólk
"Ég trúi ekki að ég muni ekki hvað hann heitir" og Svampur Sveinsson. (Gunnar: "And to be a manager, you have to be a man. Otherwise they'd call it kid-ager. You understand-ager?")
Potta-trúnó.
Þrifin voru meira að segja skemmtileg:
Ég get ekki beðið eftir næstu ferð!
Athugasemdir
Aaaa ég er spennt! Trúi ekki að ég þurfi að bíða 3 mánuði! :(
Þetta var samt alveg epísk ferð.
Þórunn (IP-tala skráð) 27.9.2010 kl. 17:44
Btw stórgott lag sem þú ert að hlusta á.
Þórunn (IP-tala skráð) 27.9.2010 kl. 17:45
Hahahaha... svo mikil snilldar ferð! :D
"Þegar Þórunn fór að undirbúa sig fyrir svefninn þá komst hún að því að sýrópsflaskan hennar (sem tekin var með til að hafa með skonsunum á sunnudeginum) hafði lekið.
Hún var mjög þakklát fyrir ráð móður sinnar að vefja flöskunni inn í eitthvað mjúkt svo hún myndi ekki brotna...."
Hahahaha...! :D
Ég hlakka svo sannarlega til næstu ferðar! ;D
Hildur (IP-tala skráð) 27.9.2010 kl. 17:49
Ég var reyndar ekki að hlusta á þetta lag, þar sem ég er á Þjóðarbókhlöðunni að læra, en ég var að hugsa um þetta lag þegar ég skrifaði færsluna... enda hlustuðum við á þetta lag í bústaðnum og áttum um það langar samræður, eins og þú kannski mannst... En ef ég man rétt þá varstu reyndar komin langt með hvítvínsbeljuna þína á þeim tímapunkti :)
Bergþóra, 27.9.2010 kl. 18:20
skemmtilegar myndir..:)
Fjólan, 29.9.2010 kl. 07:46
Haha Bergþóra ég elska þessa færslu.. Og ég og hvítvín = voðinn er vís.
Þórunn Jakobsdóttir (IP-tala skráð) 19.10.2010 kl. 14:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.