Fot i Hose - Casiokids
1.4.2011 | 16:05
Okei... þetta var random.
Ég var sem sagt heima að slæpast í náttbuxum að éta oreo kex (sjá mynd 1) og að reyna að koma mér í það að læra.
Ákvað svo að hendast upp á hlöðu.
Þó það sé ekki 'dress-code' á hlöðunni, þá ákvað ég nú samt að fara í buxur.
(Ég lofa að þetta buxna tal hefur tilgang)
Buxurnar voru inni í þvottahúsi þannig að ég fer þangað og klæði mig þar.
Svo ákveð ég að hita mér te, og þar sem maður þarf báðar hendur í það, hendi ég náttbuxunum yfir axlirnar á mér...
Á meðan vatnið er að hitna næ ég í bol og brjóstahaldara og er á leið inn í herbergi þegar einhver bankar á útidyrahurðina.
Ég, með náttbuxur vafðar um hálsinn og bol og brjóstahaldara í annarri hendinni, fer til dyra.
Sjáið þið þetta fyrir ykkur?
Gott.
Þegar ég opna dyrnar blasir við mér eftirfarandi:
-páskaegg numero 7 (sjá mynd 2)
-Gísli Einarsson
-tveir myndatökumenn
-einn hljóðmaður
Eruð þið engu nær um hvað var að gerast?
...ekki ég heldur.
Gæinn útskýrði ekkert frekar ástæðu gjafarinnar.
Eina sem ég veit er að ég er mega sátt (sjá mynd 3).
Takk fyrir mig, RÚV.
P.s. Ég verð líklegast ekki alveg jafn 'mega sátt' ef þessu verður sjónvarpað...
Athugasemdir
Ok ég er bara frekar mikið öfundsjúk! Ekki bara út í páskaeggið heldur líka bara út í sexí lúkkið! Trúi ekki að ég hafi ekki fattað þetta áður. En maður lifir og lærir. Næst tek ég Begguna á þetta.
ps. Hver er Gísli Einars?
Fríða (IP-tala skráð) 1.4.2011 kl. 16:32
Gúgglað'ann
En já, þetta lúkk er klárlega málið. Kannski maður ætti að starta trendi?
Bergþóra, 1.4.2011 kl. 16:43
hahaha ertu ekki að grínast?!? aðeins of gott
Edda (IP-tala skráð) 1.4.2011 kl. 17:14
Þetta er dagsatt og já, aðeins of gott! haha
Bergþóra, 1.4.2011 kl. 18:34
Þetta er svo randon ég er ekki að ná þessu! :D
Ragga (IP-tala skráð) 1.4.2011 kl. 19:17
Random!
ragga (IP-tala skráð) 1.4.2011 kl. 19:18
WTF?! NIIICE!! :D:D
Anna Hill (IP-tala skráð) 1.4.2011 kl. 20:32
hahaha ég dey! sexý lúkk og páskaegg á föstudegi klikkar ekki :)
Hvað varstu annars að gera af þér til að verðskulda þetta???
Rannveig (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 09:40
Ég gerði ekki neitt... þetta var bara random að öllu leyti.
Bergþóra, 2.4.2011 kl. 10:38
Hahahahaha ohh ég vona að þessu verði sjónvarpað...
Snillingur ;)
Sandra Heimisdóttir (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 12:10
Haha, þú gerir þér fulla grein fyrir því að það hljómar eins og þú hafir labbað kviknakin til dyra!
Fékkst líklegast verðlaun fyrir að koma til dyra as you are ;)
Gerða (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 09:34
hahahaha, nei, það var sem betur fer ekki keisið!
Bergþóra, 6.4.2011 kl. 09:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.