Ísland ég elska þig - Baggalútur

Hlusta á lag.
Mynd

Ó, aldagamla Íslands byggð,
þér ævarandi eg heiti tryggð.
Þú þekkir ekkert illt,
þér enginn getur spillt.
Styður öngvin stríð,
staðföst, frjáls og blíð.

Engilfríða fósturjörð,
fyrir þér liggur tíðin hörð.
Flárátt lævíst lið,
landið hatast við,
þitt helga hjarn vill fá,
hrifsað til sín aftanfrá.

Góða land, gjöfula land.
Gullnir steypast fossar þínir enn.
Sæla fold, sjálfstæða mold.
Sakleysi þitt girnast vondir menn.

Gull þín brjóta gírug flón,
er gleypa vilja hið dýra frón.
En aldrei, ástin mín,
skal efnd sú myrka sýn,
að fjallsins fagra mær,
sé forfærð, svívirt, gráti nær.

Glæsta land, gegnheila land.
Gullnir steypast fossar þínir enn.
Ísafold, magnþrungna mold.
Meyjarblóm þitt girnast vondir menn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fjóla =)

Ísland best í heimi.....!!!

p.s veit ekki alveg hvernig ég á að meika 1 og 1/2 mán án þess að fá ísl vatn!!

Fjóla =), 7.3.2010 kl. 16:05

2 Smámynd: Bergþóra

Ég held við munum alveg meika þetta sko :)

Bergþóra, 8.3.2010 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband